Hallgrímskirkja

 

Hátíðarmessur og tónleikar í Hallgrímskirkju.

Í tilefni Kirkjudaganna verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju sunnudaginn 26. júní, kl. 11.00 í samvinnu við söfnuði af landsbyggðinni. Sr. Elínborg Sturludóttir sóknarprestur í Grundarfirði prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Óskari H. Óskarssyni sóknarpesti í Ólafsvík og staðarpresti sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Sameiginlegur kór safnaðanna á norðanverðu Snæfellsnesi, Jöklakórinn, syngur undir stjórn Friðriks Stefánssonar organista.

Einsöngvarar Veronica Osterhammer og Hólmfríður Friðjónsdóttir. Þá verður gestakór frá Danmörku í heimsókn í Hallgrímskirkju, en hann heitir Christianskirkens Drenge- og Mandskor frá Fredricia. Stjórnandi kórsins er Hans Chr. Magaard og orgelleikari með kórnum er Toft Eriksen. Danski kórinn syngur ásamt “Jöklakórnum” í messunni en hefur síðan stutta tónleika eftir messuna.

Kl. 14.00 verður ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti verður Kári Þormar. Forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir.

Kristniboðavígsla verður kl. 16:00. Þá vígir biskup Íslands Helgu Vilborgu Sigurjónsdóttur og Kristján Þór Sverrisson til kristniboðs í Eþíópíu á vegum Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Vígsluvottar: Birna Gerður Jónsdóttir, Haraldur Jóhannsson, Paulos Shune, séra Ragnar Gunnarsson. Skúli Svavarsson, sem lýsir vígslu. Séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur, þjónar fyrir altari ásamt séra Ragnari Gunnarssyni. Organisti Kári Þormar.

Fyrstu tónleikar “Sumarkvölds við orgelið” verða kl. 20.00, en Hörður Áskelsson kantor Hallgrímskirkju heldur fyrstu tónleikana. Á efnisskránni verða verk eftir Frescobaldi, Bruhns, Marchand, Bach, Franck, Jón Nordal.

Birna Hjaltadóttir, 23/6 2005 kl. 13.21

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS