Jónsmessan í Hallgrímskirkju
S.l. 7 ár hafa verið miðnæturmessur á jónsmessunótt í Hallgrímskirkju. Árið 1998 var fyrsta prestastefna núverandi biskups og þar sem Jónsmessan var einmitt í þeirri viku var ákveðið að vera með miðnæturmessu með þátttöku presta og djákna. Að þessu sinni verður messan með hefðbundnum hætti fimmtudaginn 23. júní, kl. 23:00.

Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson hefur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni, sr. Maríu Ágústsdóttur, sr. Guðlaugu Helgu Ásgeirsdóttur og djáknunum Magneu Sverrisdóttur, Rósu Kristjánsdóttur, Kristínu Axelsdóttur og Halldóri Elíasi Guðmundssyni. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir sjórn Harðar Áskelssonar sem jafnframt verður organisti.
Við lok athafnarinnar gengur kór og söfnuður syngjandi út í nóttina og ef veður leyfir mun kórinn syngja nokkur vorlög úti á torgi.
Birna Hjaltadóttir, 21/6 2005 kl. 11.23