Hallgrímskirkja

 

Bandarískur stúlknakór á hádegistónleikum

Á hádegistónleikunum, fimmtudaginn 21. júlí kl. 12, syngur bandaríski stúlknakórinn Pennsylvania Girlchoir undir stjórn Mark Anderson. Á efnisskrá kórsins eru norður-amerísk þjóðlög, negrasálmar og kirkjutónlist.

Á hádegistónleikunum, fimmtudaginn 21. júlí kl. 12, syngur bandaríski stúlknakórinn Pennsylvania Girlchoir undir stjórn Mark Anderson. Á efnisskrá kórsins eru norður-amerísk þjóðlög, negrasálmar og kirkjutónlist.

Stúlknakór Pennsylvaníu var stofnaður í september 2004. Markmið kórsins er að veita ungum stúlkum með tón­listarhæfileika menntun við bestu aðstæður og tækifæri til að koma fram án tillit til efnahags, kynþáttar eða uppruna. Um leið er lögð rækt við að veita stúlkunum sjálfsöryggi, auka félagslegan þroska þeirra og þroska leiðtogahlutverk þeirra. Í kórnum eru 80 stúlkur á aldrinum 8–18 ára frá Philadelphíu-svæðinu en til Íslands kemur sá hluti sem nefnist Borgarkórinn.

Stjórnandi kórsins, Mark Anderson, er íslenskum stjórnendum barna- og ungingakóra að góðu kunnur, því hann hefur haldið námskeið hér fyrir þá. Mark Anderson er virtur organsti, þekktur kennari í orgelleik og kórstjórn og hefur skipulagt orgelnámskeið og kórstjóranámskeið víða um heim. Þá hefur hann líka komið fram á vegum Sumarkvölds við orgelið.

Erla Elín Hansdóttir, 18/7 2005 kl. 0.00

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS