Hádegistónleikar 14. júlí
Á hádegistónleikunum, sem hefjast kl. 12, fimmtudaginn 14. júlí, leikur Douglas A Brotchie, organisti Háteigskirkju. Douglas leikur verk sem öll tengjast sumri og sól á einhvern hátt. Fyrst hljóma Sumarskissur eftir breska tónskáldið Edwin Lemare, svo Summershimmer eftir Barbara Harbach, þá Adagio úr LEstate eftir Antonio Vivaldi og lokaverkið er Hymne au soleil eftir Louis Vierne. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Douglas A. Brotchie er fæddur í Edinborg í Skotlandi. Hann byrjaði að læra á orgel um fermingaraldur og 16 ára var hann fastráðinn organisti og kórstjóri við Balerno sóknarkirkjuna, kirkju sem er staðsett í þorpi sem var á þeim tíma í útjaðri Edinborgar. Douglas flutti til Íslands 1981. Hann lauk kantorsprófi og orgeleinleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar, var annar organisti Dómkirkju Krists konungs í mörg ár og var organisti Hallgrímskirkju um eitt ár í leyfi Harðar Áskelssonar. Undanfarin ár hefur Douglas verið organisti Háteigskirkju.
Hann hefur haldið tónleika víða um Evrópu, bæði sem meðleikari m.a. í Söngsveitinni Fílharmóníu, Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum svo og sem einleikari. Hann hefur oft komið fram sem organisti í sjónvarpi og útvarpi og hefur auk þess leikið inn á fjölda geisladiska.
Erla Elín Hansdóttir, 11/7 2005 kl. 0.00