Hátíð í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 10. júlí verður hátíðarmessa í Hallgrímskirkju. Sr. Helgi Hróbjartsson prestur Íslendinga í Noregi og kristniboði í Eþíópíu í áratugi prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni, en sr. Helgi mun ferma Daníel Adolfsson, sem fékk sína fræðslu í hópi íslenskra unglinga í Noregi s.l. vetur.

Þá mun japanskur prestur Shigeru Masaki flytja stutt ávarp, en hann er gestur íslenska kristniboðsins um þessar mundir, einnig mun Soka Ginarta prestur frá Konsó í Eþíópíu, sem einnig er hér í heimsókn, taka þátt í helgiþjónustunni auk Margrétar Jóhannesdóttur og kristniboðanna Margrétar Hróbjartsdóttur og Valgerðar Gísladóttur.
Organisti verður Douglas Brotchie og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur.
Birna Hjaltadóttir, 7/7 2005 kl. 14.35