Hallgrímskirkja

 

Íslensk ættjarðarlög í nýju ljósi

Á hádegistónleikum í Hallgrimskirkju nk. fimmtudag flytja þeir Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarson íslensk ættjarðarlög í eigin útsetningum þar sem spuninn gegnir stóru hlutverki. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa í um hálfa klukkustund.

Á efnisskránni eru hefðbundin ættjarðarlög, Land míns föður, Hver á sér fegra föðurland og Lofsöngur. Einnig leika þeir íslensk einsöngslög og dægurlög sem á síðari árum hafa fest sig í sessi sem ættjarðarlög. Lögin er öll að finna á hljómdiski sem kom út í fyrra með leik Sigurðar og Gunnars og nefnist Draumalandið.

Á hádegistónleikum í Hallgrimskirkju nk. fimmtudag flytja þeir Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarson íslensk ættjarðarlög í eigin útsetningum þar sem spuninn gegnir stóru hlutverki. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa í um hálfa klukkustund.

Á efnisskránni eru hefðbundin ættjarðarlög, Land míns föður eftir Þórarin Guðmundsson, Hver á sér fegra föðurland eftir Emil Thoroddsen og Lofsöngur Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Einnig leika þeir íslensk einsöngslög, Draumalandið eftir Sigfús Einarsson og Nótt (Nú ríkir kyrrð í djúpum dal) eftir Árna Thorsteinsson. Þá eru flutt dægurlög sem á síðari árum hafa fest sig í sessi sem ættjarðarlög, Ísland er land þitt eftir Magnús Þór Sigmundsson og Fylgd eftir Sigurð Rúnar Jónsson. Öll er þessi lög að finna á hljómdiski sem kom út í fyrra með leik Sigurðar og Gunnars og nefnist Draumalandið. Hann var hljóðritaður í Laugarneskirkju og tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna.

Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson hafa áður vakið athygli fyrir diska sína „Sálma lífsins“ og „Sálma jólanna“, en báðir nutu mikilla vinsælda og hlutu jákvæða dóma. Gunnar og Sigurður hafa auk þess báðir gefið út diska í eigin nafni og leikið inn á fjölda diska með öðrum.

Sverrir Jónsson, 26/7 2005 kl. 8.21

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS