Messa í Hallgrímskirkju 24. júlí 2005
Sunnudaginn 24. n.k. verður messa kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari en auk hans koma nokkrir messuþjónar að messunni, sem lesa ritningarorð, aðstoða við útdeilingu sakramentisins o.fl. Douglas Brotchie verður organisti og stýrir söng félaga úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Að messu lokinni er boðið upp á kaffisopa í safnaðarsal kirkjunnar.
Birna Hjaltadóttir, 20/7 2005 kl. 10.41