Hallgrímskirkja

 

Messa sunnudaginn 31. júlí 2005

Sunnudaginn 31. júlí verður messa kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti verður Jónas Þórir og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Einnig mun þýskur ferðahópur á vegum Liebenzeller Mission taka þátt í messunni og messuþjónar úr hópi sjálfboðaliða aðstoða. Samskot dagsins munu renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Eftir messu er boðið upp á kaffisopa að venju.

Ensk messa verður kl. 14:00. Sr. Bjarni Þór Bjarnason predikar og þjónar fyrir altari, en hann starfaði um þriggja ára skeið í anglíkönsku kirkjunni og hefur annast messugjörð á ensku í Hallgrímskirkju undanfarin ár. Organisti verður Douglas A. Brotchie og forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir. Messukaffi er í suðursal að messu lokinni.

Helgihald á virkum dögum er hefðbundið, fyrirbænamessa á þriðjudögum kl. 10.30 og morgumessa kl. 08.00 á miðvikudögum.

Birna Hjaltadóttir, 27/7 2005 kl. 11.47

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS