Hallgrímskirkja

 

Nýsjálenskur organisti í heimsókn - Sumarkvöld við orgelið

Á tónleikum helgarinnar leikur hinn bráðefnilegi nýsjálenski orgelleikari Nigel Potts. Undanfarin ár hefur hann vakið athygli á tónleikum bæði austanhafs og vestan. Hann starfar í New York þar sem hann er organisti við St. Peter’s by-the-Sea biskupakirkjuna í Bay Shore.

Efnisskrá hans samanstendur bæði af hefðbundnum verkum auk verka eftir tónskáld sem eru alla jafna ekki skrifuð fyrir orgel. Meðal annars leikur Potts verk eftir þrjá af helstu organistum Parísarborgar á síðari hluta 19. aldar, Gigout, Dubois og Guillmant. Tónleikar Nigel hefjast kl. 12 á laugardaginn, en sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 20.

Á tónleikum helgarinnar leikur hinn bráðefnilegi nýsjálenski orgelleikari Nigel Potts. Undanfarin ár hefur hann vakið athygli á tónleikum bæði austanhafs og vestan. Hann starfar í New York þar sem hann er organisti við St. Peter’s by-the-Sea biskupakirkjuna í Bay Shore.

Sunnudagstónleikarnir hefjast með verki eftir Eugéne Gigout, Grand Choeur Dialogué þar sem Chamade trompetar Klais-orgelsins hljóma í samspili við aðrar raddir þess. Þá kemur Fúga í g-moll K 401 eftir Mozart og því næst hið ástsæla tónverk Sibeliusar, Finlandia, sem hljómar á tónleikunum í umritun eftir Herbert Austin Fricker. Þá leikur Potts svítu, sem hinn virti enski organisti og tónskáld, Paul Spicer, tileinkaði honum og samanstendur af þremur þáttum sem urðu til af ýmsu tilefni á 27 árum. Nýjasta þáttinn, Fanfares & Dances, samdi hann fyrir brúðkaup Potts og Leise Leyrer. Þá leikur Potts verk eftir samtímamann og starfsbróður Gigout, Théodore Dubois sem hlaut hina virtu organistastöðu við Madeleine kirkjuna í París. Þetta er er lítið fallegt verk með flautuskölum yfir dulúðugri laglínu og nefnist In Paradisum. Síðust á efnisskrá fyrir hlé er Tokkata og fúga í d-moll eftir Max Reger, fjölhæfasta tónskáld orgeltónlistar um aldamótin 1900.

Eftir hlé hljómar fyrst hinn kunni mars Johns Philips Sousa, Liberty Bell, en síðan koma tvö verk eftir Jean Langlais sem var blindur organisti og tónskáld í París, Söngur um frið (Chant de paix) og Söngur um hetjudáð (Chant Héroïque). Loks hljóma tvær umritanir, hin fyrri eftir orgelleikarann sjálfan á Vokalísu eftir Sergei Rachmaninoff og hin síðari eftir Alexandre Guilmant, Mars byggður á kunnum kórkafla úr Messíasi, Lift up your heads.

Valin verk efnisskrárinnar verða flutt á tónleikunum á laugardag, sem hefjast klukkan 12 á hádegi, en sunnudagstónleikarnir hefjast klukkan 20.

Nigel Potts söng í drengjakór dómkirkjunnar í Wellington á Nýja-Sjálandi og síðar var hann orgelnemi við kirkjuna. Hann lauk námi frá tónlistarháskólanum í Wellington og frá Trinity College of Music í Lundúnum. Árið 1992 fékk hann styrk úr styrktarsjóði hins þekkta orgelleikara Gillian Weir og stundaði nám við Royal Academy of Music. Með náminu lék hann m.a. við St. Paul’s dómkirkjuna, í Westminster Abbey og Southwark Cathedral. Í maí árið 2002 lauk Nigel Potts meistaranámi í tónlist frá kirkjutónlistardeild Yale-háskóla þar sem kennari hans var prófessor Thomas Murrey.

Sem konsertorgelleikari hefur Nigel Potts leikið í fjórum heimsálfum, í Eyjaálfu, Austur-Asíu, í Bandaríkjunum og Kanada og víða á Englandi. Þá hefur tónleikum hans verið útvarpað. Einnig hafa hljómdiskar hans hlotið góðar viðtökur gagnrýnanda. M.a. hefur hann hljóðritað nokkur orgelverk eftir breska tónskáldið Paul Spicer sem hefur tileinkað Nigel Potts nokkur verka sinna.

Sverrir Jónsson, 21/7 2005 kl. 9.33

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS