Sumarkvöld við orgelið - Tónleikar helgarinnar
Danski orgelleikarinn Anne Kirstine Mathiesen er gestur Sumarkvölds við orgelið í Hallgrímskirkju. Hún leikur laugardaginn 30. júlí kl. 12 og sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Anne Kirstine Mathiesen er organisti Sct. Nicolai kirkju í Køge, sunnan Kaupmannahafnar en á undanförnum árum hefur hún líka vakið athygli sem góður orgelleikari á tónleikaferðum víða um Norðurlönd og í Þýkalandi, auk þess að vera eftirsótt sem undirleikari með kórum og einsöngvurum. Þá hefur hún tekið þátt í kynningum á gömlum dönskum orgelum, bæði í kirkjum og hallarkapellum. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Á fyrra hluta efnisskrár sunnudagstónleikanna gefur Anne Kirstine góða innsýn inn í þróun danskrar orgeltónlistar allt frá lokum 17. aldar til dagsins í dag. Fyrsta verkið er Tokkata eftir Buxtehude, en hann er sennilega þekktasta tónskáld Dana. Eftir Leif Kayser flytur Anne Kóraltilbrigði og Tokkötu byggða á stefi Maríubænarinnar Ave Maria. Tónlist Keyser var samin fyrir kirkjuna enda var hann bæði menntaður sem organisti og kaþólskur prestur en hann kenndi einnig við Konservatoríið í Kaupmannahöfn. Nýjustu dönsku verkin eru tveir orgelkóralar eftir Bo Grønbech dómorganista í Helsingjaeyri. Inn á milli dönsku verkanna flytur hún Prelúdíu og fúgu í g-moll eftir Johann Sebastian Bach, Prelúdíu og fúgu í a-moll eftir sænska tónskáldið Emil Sjögren og fyrri hlutanum lýkur með Salamanca sem svissneska tónskáldið Guy Bovet samdi árið 1986.
Á síðari hluta tónleikanna flytur Anne Kirstine hina vinsælu 5. orgelsinfóníu Charles-Marie Widors. Sinfónían er í fimm þáttum og er sá síðasti, Tokkata, meðal vinsælustu orgelverka allra tíma.
Á laugardagstónleikunum fá tónleikagestir að heyra sýnishorn af efnisskrá sunnudagsins, þ.e. Tokkötu Buxtehudes, Kóraltilbrigði eftir Kayser, Prelúdíu og fúgu eftir Sjögren og Salamanca sem Guy Bovet samdi yfir þjóðlaga frá borginni Salamanca á Spáni.
Anne Kirstine Mathiesen fæddist árið 1967, hún hóf píanónám 5 ára og byrjaði að leika á orgel aðeins 14 ára gömul. Hún lauk kirkjutónlistarnámi frá Konunglega danska tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1993 og einleikaraprófi 1995 en þá lék hún einleikstónleika í Helligåndskirkjunni á Strikinu í Kaupmannahöfn við mjög góðan orðstír. Aðalkennarar hennar voru Hans Fagius og Jesper Madsen.
Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga, m.a. styrktarsjóði Veuve Cliqouts og frá minningarsjóði Robert Russels. Hún er virk sem orgelleikari og meðleikari í Danmörku og hún hefur haldið tónleika víða um Norðurlönd og í Þýskalandi.
Erla Elín Hansdóttir, 30/7 2005 kl. 9.05