Hallgrímskirkja

 

Tónleikar helgarinnar - Sumarkvöld við orgelið

Á hádegistónleikum, laugardaginn 16. júlí kl. 12, leika finnsku hjónin Mannfred Gräsbeck á fiðlu og Maija Lehtonen á orgel. Undanfarin 20 ár hafa þau komið víða fram á tónleikum við góðan róm. Á aðaltónleikum helgarinnar, sunnudaginn 27. júlí kl 20, leikur Maija Lehtonen á Klaisorgelið. Báðir tónleikarnir eru styrktir af Finnsk-íslenska menningarsjóðnum.

Á hádegistónleikum, laugardaginn 16. júlí kl. 12, leika finnsku hjónin Mannfred Gräsbeck á fiðlu og Maija Lehtonen á orgel. Undanfarin 20 ár hafa þau komið víða fram á tónleikum við góðan róm.

Á aðaltónleikum helgarinnar, sunnudaginn 27. júlí kl 20, leikur Maija Lehtonen á Klaisorgelið.

Báðir tónleikarnir eru styrktir af Finnsk-íslenska menningarsjóðnum.

Á efnisskránni á laugardeginum eru þrjú stutt verk eftir Fritz Kreisler, þá Partíta í d-moll eftir Johann Sebastian Bach og loks Fantasía um Töfraflautu Mozarts eftir Pablo de Sarasate.

Á fyrri hluta efniskrár sunnudagstónleikana eru barrokverk, Prelúdía í e-moll eftir Nicolaus Bruhns, og þrjú verk eftir Johann Sebastian Bach, tvær mismunandi útgáfur af sálmforleikjum við sálmalagið Vater unser im Himmelreich og svo hin fræga Passacaglia í c-moll. Eftir hlé leikur Maija Lehtonen Sónötu í c-moll eftir Franz Mendelssohn-Bartholdy og eftir Marco Enrico Bossi leikur hún Prelúdíu op. 70/1 og Hetjumars (Marche Héroïque) op. 72

Undanfarin 25 ár hafa þau hjónin verið virk í finnsku tónlistarlífi. Manfred Gräsbeck hefur m.a. frá 1982 verið konsertmeistari Óperuhljómsveitarinnar í Helsinki og hún er virtur orgelleikari og kennari. Þá hafa þau oftlega komið fram saman, bæði í Finnlandi og víða um Evrópu.

Erla Elín Hansdóttir, 13/7 2005 kl. 7.47

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS