Hádegistónleikar fimmtudag - Friðrik Vignir Stefánsson
Fimmtudaginn 11. ágúst leikur Friðrik Vignir Stefánsson, organisti Grundarfjarðarkirkju, á orgeltónleikum á vegum Sumarkvölds við orgelið sem hefjast kl. 12 að hádegi. Þeir eru styrktir af Félagi íslenskra organleikara en ágóðinn rennur til viðhalds orgelsins. Þetta eru jafnframt síðustu fimmtudagstónleikarnir í sumar.

Tónleikarnir hefjast á Tokkötu í d-moll eftir Johann Sebastian Bach og umritun hans á Konserti í G-dúr eftir Antonio Vivaldi. Eftir Max Reger leikur Friðrik Þrjá sálmforleiki, op. 135a. Þetta eru allt mjög þekktir sálmar sem á íslensku heita Vor Guð er borg á bjargi traust, Vaknið, Síons verðir kalla og Lofið vor Drottin.
Úr Gotnesku svítunni eftir Léon Boëllmann heyrsti síðasti kaflinn Tokkötu. Íslenska verkið á þessum tónleikum er sálmforleikur Jóns Þórarinssonar Jesús, mín morgunstjarna en tónleikunum lýkur með Tokkötu í G-dúr eftir franska tónskáldið Théodore Dubois.
Friðrik Vignir Stefánsson er fæddur á Akranesi 1962. Hann lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akranesi 1983 og einleikaraprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1987. Kennarar hans á orgel voru Haukur Guðlaugsson, Fríða Lárusdóttir og Hörður Áskelsson. Síðan 1988 hefur Friðrik Vignir starfað sem organisti og kórstjóri við Grundarfjarðarkirkju, sem og skólastjóri Tónlistarskóla Grundarfjarðar. Þess má geta að hann hefur verið mjög ötull í samstarfi kirkjukóranna á Snæfellsnesi.
Á síðasta ári hélt Friðrik Vignir orgeltónleika í boði Katarinukirkjunnar í Stokkhólmi, tók þátt í alþjóðlegum masterclass í orgelleik í Haarlem í Hollandi. Þá hélt hann einnig orgeltónleika í Stykkishólmskirkju og í Laugarneskirkju í Reykjavík.
Erla Elín Hansdóttir, 9/8 2005 kl. 8.33