Hallgrímskirkja

 

Hádegistónleikar fimmtudag - íslensk og frönsk orgeltónlist

Fimmtudaginn 4. ágúst leikur Steingrímur Þórhallsson á orgeltónleikum í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru á vegum Sumarkvölds við orgelið og hefjast kl. 12 að hádegi. Þeir eru styrktir af Félagi íslenskra organleikara en ágóðinn rennur til viðhalds orgelsins. Á efnisskránni eru þrír íslenskir sálmforleikir og þættir úr orgelsinfóníum eftir Widor og Vierne.

Fimmtudaginn 4. ágúst leikur Steingrímur Þórhallsson á orgeltónleikum í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru á vegum Sumarkvölds við orgelið og hefjast kl. 12 að hádegi. Þeir eru styrktir af Félagi íslenskra organleikara en ágóðinn rennur til viðhalds orgelsins.

Einn liður í hádegistónleikunum á fimmtudögum er að kynna íslenska orgeltónlist og á efnisskrá Steingríms eru fyrst þrír íslenskir sálmforleikir. Þetta eru Guði sé lof, því gæskan ei dvín eftir Atla Heimi Sveinsson, Jesús, mín morgunstjarna eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Lofið Guð eftir Þorkel Sigurbjörnsson.

Síðari hluti efnisskrárinnar er tileinkaður stóru frönsku orgelsinfóníutónskáldunum Widor og Vierne. 6. orgelsinfónía Widors er af mörgum talin ein fallegasta sinfónía hansog úr henni leikur Steingrímur Intermezzo og Finale en eftir Vierne leikur hann Finale úr 1. orgelsinfóníunni op. 14.

Steingrímur Þórhallsson fæddist árið 1974 og ólst upp á Húsavík þar sem hann hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun við Tónlistarskólann á Húsavík. 17 ára flutti hann til Reykjavíkur og lauk píanókennaraprófi 1998 frá Tónlistarskólanum í Reykjavík undir leiðsögn Önnu Þorgrímsdóttur píanókennara og kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með Martein H. Friðriksson dómorganista sem orgelkennara. Þá um haustið lá leiðin til Rómar í Kirkjutónlistarskóla Páfagarðs og útskrifaðist hann þaðan 2001 með Magistero di organo. Þar var aðalkennari hans Giancarlo Parodi.

Haustið 2002 var hann ráðinn organisti við Neskirkju í Reykjavík eftir að hafa starfað um tíma sem skólastjóri Tónskólans á Hólmavík. Hann hefur víða komið fram á tónleikum, m.a. á tónlistardögum Dómkirkjunnar, hér í Hallgrímskirkju, í Neskirkju, Skálholti og á Selfossi.

Erla Elín Hansdóttir, 2/8 2005 kl. 10.56

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS