Hallgrímskirkja

 

Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju

Síðustu tveir dagar Kirkjulistahátíðar í Hallgrímskirkju verða með mjög fjölbreyttu efni.Á laugardag, kl. 12.00 á hádegi verður Tónlistarandakt með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni. Hátíðarkór Kirkjulistahátíðar syngur. Síðdegis kl. 18.00 verða kórtónleikar Hamrahlíðarkórsins og um kvöldið kl. 22.00 verður fluttur gjörningurinn Röddun í tengslum við myndverk Rúríar í kirkjunni.

Sunnudagurinn hefst með hátíðarmessu kl. 11.00. Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestunum Sigurði Pálssyni, Jóni D. Hróbjartssyni, Kristjáni V. Ingólfssyni, Báru Friðriksdóttur og Magneu Sverrisdóttur, djákna, en lesari verður Sigurður Björnsson. Frumflutt verður verkið Drottinn er styrkur minn fyrir sópran, kór, 12 málmblásara, pákur og orgel eftir John A. Speight. Flytjendur verða Elín Ósk Óskarsdóttir, Mótettukór Hallgrímskirkju, Eggert Pálsson slagverksleikari og málmblásarasveit úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi Hörður Áskelsson. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. Þá mun gestakór Kirkjulistahátíðar, Kór Dómkirkunnar í Osló syngja og m.a. flytja Mótettu eftir F.Mendelssohn með Hátíðarkór Kirkjulistahátíðar. Stjórnandi dómkórsins er Terje Kvarm. Dómkórinn í Osló mun halda tónleika síðar um daginn, kl. 17.00, en þá verður flutt Matteusarpassía eftir Trond Kverno. Ensk messa verður kl. 14.00 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Guðrún Finnbjarnardóttir verður forsöngvari og Hörður Áskelsson leikur á orgelið.

Birna Hjaltadóttir, 25/8 2005 kl. 11.09

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS