James David Christie á síðustu helgi Sumarkvölds við orgelið
Hinn heimsþekkti orgelleikari James David Christie er kominn til landsins til að leika á tónleikum helgarinnar. Hann leikur á hádegistónleikunum 13. ágúst kl. 12 og á kvöldtónleikum sunnudaginn 14. ágúst kl. 20. James David Christie er einn virtasti orgelleikari Bandaríkjanna auk þess að vera mjög eftirsóttur kennari.
Hinn heimsþekkti orgelleikari James David Christie er kominn til landsins til að leika á tónleikum helgarinnar. Hann leikur á hádegistónleikunum 13. ágúst kl. 12 og á kvöldtónleikum sunnudaginn 14. ágúst kl. 20. James David Christie er einn virtasti orgelleikari Bandaríkjanna auk þess að vera mjög eftirsóttur kennari.
Efnisskrá sunnudagsins er tvískipt. Fyrir hlé leikur James David fjögur verk dæmigerð fyrir norðurþýska stíl orgeltónlistar barroktímabilsins. Prelúdía í d-moll eftir Dietrich Buxtehude er dæmigert fyrir stylus phantasticus en þá skiptast á formfastir kaflar og frjálsari. Ricercar er eitt glæsilegasta hljómborðsverk hollenska tónskáldsins Jan Pieterszoon Sweelinck og um leið gott dæmi um vel skrifaðan kontrapunkt. Frá Bach-fjölsyldunni er Chiaconna í B-dúr eftir Johann Bernhard Bach en hann og hinn frægi Johann Sebastian voru bræðrasynir. Síðust er Prelúdía í d-moll eftir Georg Böhm, skrifuð í fantasíustíl, líkt og Prelúdía Buxtehudes.
Eftir hlé leikur James David Christie orgelverk 20. aldar. Fyrsta verkið er Sortie í B-dúr eftir Guy Ropartz. Síðan tvö verk eftir feðgana Albert og Jehan Alain. Verk föðurins heitir Scherzo, upphaflega skrifað sem gjöf til brúðar sinnar á brúðkaupsdeginum árið 1910 en verk sonarins Litanies var skrifað 1937 skrifað undir þemanu að þegar allt þrýtur, þá er það trúin ein sem vísar veginn áfram. Verk Joel Martinsons Aria on a Chaconne var samin fyrir vígslu orgelsins í St. Rita kirkjunni í Dallas þar sem höfundurinn er organisti auk þess að vera meðal efnilegustu bandarísku tónskáldanna sem leggja áherslu á kirkjutónlist. Það var James David sem frumflutti verkið.
Síðasta verk tónleikanna er Victimae paschali, spuni sem Tournemire hljóðritaði um 1930 og Maurice Duruflé skráði og gaf út 1958. Verkið byggir á gregorsstefi páskadags.
Á laugardeginum leikur James David fjögur verk. Frá barokktímabilinu leikur hann Prelúdíu í d-moll eftir Dietrich Buxtehude og Chiaconnu í B-dúr eftir Johann Bernhard Bach. Þriðja verkið er Aria on a Chaconne eftir Joel Martinson og síðasta verkið er Litanies eftir Jehan Alain.
James David Christie er meðal þekktustu organista heimsins í dag. Hann hefur komið fram víða um heim bæði sem einleikari á orgel og með sinfóníuhljómsveitum og hljómsveitum sem leika að gömul hljóðfæri undir stjórn þekktra stjórnanda eins og Kurt Masur, Philippe Herreweghe, Seiji Ozawa og Joshua Rifkin. Þá hefur hann frumflutt fjölda verka eftir þekkt tónskáld.
Christie er orgelprófessor við Oberlin tónlistarháskólann í Ohio auk þess sem hann hefur hlotið ýmsar heiðursviðurkenningar, m.a. umsjónarmaður orgela við Wellesley College. Síðan 1978 hefur hann verið organisti Sinfóníuhljómsveitar Boston og hefur nýlega leikið á endurbyggt orgel tónlistarsalar hljómsveitarinnar í Boston undir stjórn James Levine. Þá hefur hann verið gestaprófessor m.a. við tónlistarháskólana í París, Vín og Krakow.
Árið 1979 var James David Christie fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að vinna alþjóðlegu orgelkeppnina í Brugge í Belgíu og sá fyrsti í sögu keppninnar að vinna bæði fyrstu verðlaun og áheyrendaverðlaunin. Síðan þá hafa nemendur hans unnið í mörgum alþjóðlegum keppnum víða um heim. Núna nýverið unnu þrír nemenda hans í bandarískum orgelkeppnum og aðrir þrír hafa komist í lokaumferð alþjóðlegra keppna sem verða haldnar síðar á þessu ári. Þá hefur Christie verið í dómnefndum víða um heim og á næsta ári verður hann sem slíkur í Atlanta, Bordeaux og Chartres í Frakklandi og Kaliningrad í Rússlandi.
James David Christie var veitt heiðursdoktorsnafnbót í listum við New England School of Law árið 1980 í þakklæti fyrir ríkulegt framlag hans til tónlistarlífsins í Boston.
Erla Elín Hansdóttir, 11/8 2005 kl. 22.15