Messur og helgihald á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju
Dagana 20.-28. ágúst verður Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju með afar fjölbreyttri dagskrá, en þetta er 10. Kirkjulistahátíðin sem haldin er í kirkjunni.
Hátíðin verður sett á hátíðarsamkomu á laugardaginn 20. ágúst kl. 16.00 og síðan verður Listavaka unga fólksins fram eftir kvöldi en kl. 10.00 verður helgistund í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Margrét Sigurðardóttir, sópran, syngur einsöng.
Sunnudaginn 21. ágúst verður hátíðarmessa kl. 11.00. Sr. Sigurður Pálsson prédikar en með honum þjóna að messunni sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, Magnea Sverrisdóttir, djákni og fleiri messuþjónar. Sönghópurinn Voces Thules syngur og organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. David Sanger konsertorganisti frá Englandi, einn af gestum Kirkjulistahátíðar, leikur eftirspil í messunni. Sögustund verður fyrir börnin. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
Alla daga Kirkjulistahátíðar verður helgihald, þ.e. hið hefðbundna helgihald Hallgrímskirkju í miðri viku, Bænamessa kl. 10.30 á þriðjudag og Morgunmessa kl. 08.00 á miðvikudag, þá verða Tónlistarandaktir kl. 12.00 alla dagana frá mánudegi til laugardags þar sem fjölmargir listamenn og prestar koma við sögu.
Lokadagur hátíðarinnar verður sunnudaginn 28. ágúst, en þá verður m.a. hátíðarmessa með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni o.fl.
Birna Hjaltadóttir, 18/8 2005 kl. 13.33