Hallgrímskirkja

 

Pólsk orgelveisla um helgina- Sumarkvöld við orgelið

Það er ekki oft sem pólsk tónlist heyrist í Hallgrímskirkju en núna um helgina er pólski orgelleikarinn Zygmunt Strzep gestur tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið. Hann leikur á tvennum tónleikum, laugardaginn 6. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 7. ágúst kl. 20. Zygmunt Strzep er meðal virtustu organista Pólverja um þessar mundir.

Það er ekki oft sem pólsk tónlist heyrist í Hallgrímskirkju en núna um helgina er pólski orgelleikarinn Zygmunt Strzep gestur tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið. Hann leikur á tvennum tónleikum, laugardaginn 6. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 7. ágúst kl. 20. Zygmunt Strzep er meðal virtustu organista Pólverja um þessar mundir. Hann hefur leikið víða um heim auk þess sem hann hefur verið gestaprófessor bæði í Ástralíu, Bandaríkjunum og víðar. Hann starfar sem organisti við Skt. Bernhard kirkjuna í Hamborg í Þýskalandi.

Á laugardagstónleikunum leikur Zygmunt Strzep þrjú verk. Hið fyrsta er Tokkata og fúga í d-moll eftir Bach og eftir hann leikur hann einnig sálmforleikinn Jesus bleibet meine Freude. Síðari hluti tónleikanna er helgaður tónskáldinu Felix Borowski því þá leikur Zygmunt Strzep Sónötu nr. 2 í C-dúr eftir þetta pólska tónskáld, sem engu að síður aldrei náði að sjá ættjörð sína. Zygmunt Strzep hefur á undanförnum árum lagt sig sérstaklega eftir að kynna tónlist þessa merka tónskálds, kennara og gagnrýnanda sem fæddist í Englandi, sonur pólsks aðalmanns, hlaut menntun sína í Lundúnum og Köln, en bjó og starfaði í Chicago stærstan hluta æfinnar.

Fyrrgreind verk heyrast einnig á tónleikunum á sunnudagskvöldið. Þar býður Zygmunt Strzep einnig upp á Sjö þætti úr geysistóru safni orgelverka sem Johannes de Lublin safnaði um miðja 16. öld og flest eru tileinkuð Nikulási nokkrum frá Krakov. Efnisskrá sunnudagsins býður einnig upp á Sinfóníu í D-dúr eftir Ítalann Davide da Bergamo, öðru nafni Felice Moretti og fyrri hluta tónleikanna lýkur með Sonata Eroica eftir belgíska tónskáldið Joseph Jongen. Á síðari hluta tónleikanna hljómar, auk Sónötu Borowskis, Stúdentasöngvar úr Faust eftir hið virta tékkneska tónskáld Petr Eben.

Zygmunt Strzep er meðal bestu organista Póllands um þessar mundir. Hann stundaði nám við Fryderyk Chopin tónlistarháskólann í Varsjá í Póllandi og Listaháskólann í Hamborg í Þýskalandi. Árið 1986 lauk hann orgelleikara­prófi og 1989 einleikaraprófi með láði. Svo hefur hann stundað nám hjá próf. Gaston Litaize í París, Marin Haselböck í Vín, hjá dr. Michael Schneider í Köln og André Fleury í París. Zygmunt Strzep hefur einnig stundað nám við Tónlistardeild Indiana Háskóla í Bloomington í Bandaríkjunum. Hann hefur tekið þátt í kunnum orgelhátíðum í öllum heimsálfum.

Á undanförnum árum hefur Zygmunt Strzep bætt orgelverkum pólsk-bandaríska tónskáldsins Felix Borowski á efnisskrá sína og þannig gefið aftur auknum fjölda áheyrenda tækifæri til að kynnast lífi og tónsmíðum hans.

Zygmunt Strzep heldur meistaranámskeið víða um heim og er gestaprófessor við tónlistarháskóla í Ástralíu, Brasilíu, Namibíu, Singapúr og í Bandaríkjunum.

Erla Elín Hansdóttir, 4/8 2005 kl. 10.57

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS