Fræðsla og messur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 2. október
Fræðslumorgnar fyrir messu á sunnudögum hefjast 2. október kl. 10.00.
Fyrirlesari: Dr. Vilhjálmur Árnason heimskpekingur ræðir efnið Uppeldi og frelsi í neyslusamfélagi.
Messa og barnastarf kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson og hópur úr Mótettukórnum syngur. Fermingarbörn aðstoða við messuna og Magnea Sverrisdóttir djákni stýrir banrastarfinu. Kl. 18.00 verður samverustund fyrir fermingarbörnin í safnaðarsal kirkjunnar.
Kvöldmessa verður kl. 20.00 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Hulda Björk Garðarsdóttir sópran syngur einsöng við undirleik Björns Steinars Sólbergssonar, organista. Kvöldmessur eru með einföldu formi, stuttri hugvekju, heilagri kvöldmáltíð og bænastund. Bænaljós verða tendruð og þátttakendum gefst kostur á að skrifa bænir á bænaseðla.
Birna Hjaltadóttir, 29/9 2005 kl. 12.26