Nýir félagar í Mótettukór Hallgrímskirkju
Mótettukór Hallgrímskirkju er að hefja sitt 24. starfsár. Kórinn getur bætt við tveimur tenórum og tveimur bössum. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Hörð Áskelsson, stjórnanda kórsins, í síma 693 6690.
Mótettukór Hallgrímskirkju er að hefja sitt 24. starfsár. Kórinn getur bætt við tveimur tenórum og tveimur bössum. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Hörð Áskelsson, stjórnanda kórsins, í síma 693 6690.
Mótettukór Hallgrímskirkju er um 50 manna kór sem starfar við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Kórinn er jafnframt kirkjukór við kirkjuna og má gera ráð fyrir að hver kórfélagi syngi við messur u.þ.b. 16─18 sinnum á ári.. Vetrarstarfið hefst um miðjan september og er æft á þriðjudögum kl. 20─22:30 og annan hvorn laugardag kl. 10─14. Mjög lítið er um aukaæfingar en æfingum getur verið skipt upp vegna raddæfinga. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Aðalmarkmið kórsins er að flytja kirkjutónlist frá hinum ýmsu tímabilum, allt frá endurreisn til dagsins í dag. Á efnisskrá kórsins er m.a. tónlist við sálma Hallgríms Péturssonar, stórverk Bachs, mótettur hans og kantötur, mótettur eftir Schütz, Palestrina, Purcell, Brahms, Mendelssohn, Bruckner, Copland og Duruflé, sálumessur Fauré, Dururflé og Mozarts, óratóríur Mendelssohns og kirkjulegir söngvar og verk fyrir kór og orgel úr ýmsum áttum. Auk þess hefur kórinn frumflutt fjölda verka eftir íslensk tónskáld, nú síðast Passíu Hafliða Hallgrímssonar, Jólaóratoríu og Drottinn er styrkur minn eftir John Speight.
Kórinn vinnur hratt og þess má geta að á síðasta starfsári (sem lauk fyrir viku síðan) flutti kórinn 6 mismunandi efnisskrár á 12 tónleikum.
Framundan er að flytja Sálumessur eftir Fauré og Mozart á tónleikum 6. nóvember, fimm jólatónleika (útgáfutónleikar) í fyrstu viku í aðventu og EBU tónleika 18. desember.
Erla Elín Hansdóttir, 6/9 2005 kl. 10.53