Hallgrímskirkja

 

Tólf sporin - andlegt ferðalag

Boðið verður upp á Tólf spora hópastarf í Hallgrímskirkju í vetur eins og undanfarna vetur. Fyrstu fjórir fundirnir sem verða < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

27. september, 4., 11. og 18. október eru kynningarfundir og eru öllum opnir. Eftir það

er unnið í lokuðum hópum í 30 vikur yfir veturinn. Fundartími er kl. 19:00-21:00 á þriðjudagskvöldum.

Tólf spora aðferðin hentar öllum sem vilja þiggja styrk trúarinnar til að vinna með tilfinningar sínar og efla þroska sinn og sjálfsþekkingu.

Vertu velkomin(n) á sporafund…….

Nánari upplýsingar á www.viniribata.is

og hjá Helgu og Magnúsi í síma 5645227

TÓLF SPORIN Í HALLGRÍMSKIRKJU

ANDLEGT FERÐALAG

< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Í vetur verður aftur boðið upp á tólf spora hópastarf í kjallara Hallgrímskirkju, eins og undanfarna vetur. Fundirnir verða á þriðjudagskvöldum kl. 19:00-21:00 í samtals 30 vikur. Fyrstu fjórir fundirnir eru kynningarfundir og eru öllum opnir. Kynningarfundirnir verða þriðjudagana 27. september, 4., 11. og 18. október. Eftir kynningarfundina fer starfið fram í litlum lokuðum hópum svokölluðum fjölskylduhópum. Í fjölskylduhópunum deilir fólk reynslu sinni, styrk og vonum hvert með öðru og myndar þannig vináttu- og trúnaðartengsl.

Í tólf spora starfinu er unnið eftir vinnubókinni Tólf spor – andlegt ferðalag en hún fæst í Kirkjuhúsinu og í stærri bókaverslunum, auk þess sem hún verður til sölu á kynningarkvöldunum. Hvert spor er vanalega unnið á tveimur vikum og þarf að vinna heimavinnu sem felst í að svara skriflega þeim spurningum sem í bókinni eru. Því nákvæmari sem heimavinnan er, þeim mun meiri árangur næst í hópastarfinu. Að sumu leyti er spora starfið krefjandi og því kjósa margir að fara fleiri en eina umferð í sporastarfi. Tólf spora starfið er þess eðlis að það er klárast aldrei.

Hver maður mætir áföllum og verður fyrir árekstrum á lífsleiðinni sem misvel tekst að vinna úr og margir sitja eftir með sár sem hafa ekki gróið og valda truflun á samskiptum við aðra. Margir hafa líka alist upp við aðstæður sem voru of erfiðar fyrir börn. Vanabundin hegðun sem hefur mótast af þessu getur valdið vanlíðan og hindrað eðlilegan þroska. Með því að velja tólf spora ferðalagið er valin leið sem áður hefur verið stikuð af öðru fólki. Það getur verið talsverður spölur á milli stikanna og yfirsýnin fram á veginn ekki nema frá einni stiku til annarrar. Stikurnar eru sporin tólf og ef þeim er fylgt liggur leiðin til bata. Tólf spora vinnan er gagnleg öllum sem í einlægni vilja vinna með sínar eigin tilfinningar að bættri líðan og meiri lífsfyllingu og leita styrks í kristinni trú.

Þátttaka í Tólf spora starfi er ókeypis og í boði kirkjunnar að öðru leyti en því að kaupa þarf vinnubókina og leggja fram lítils háttar í kaffisjóð vikulega.

Birna Hjaltadóttir, 15/9 2005 kl. 13.35

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS