Hallgrímskirkja

 

Sálumessur Mozarts og Faurés í Hallgrímskirkju

Tvær af frægustu sálumessum tónlistarsögunnar verða fluttar á tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á allra heilagra messu, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17.00.

Á þessum degi í fyrra söng Mótettukórinn sálumessur eftir Gabriel Fauré og Maurice Duruflé við orgelundirleik Mattiasar Wagers og uppskar mikið lof. Nú verður hin undurfagra sálumessa Faurés flutt á ný, í sjaldheyrðum hljómsveitarbúningi, og aftur mun tær rödd drengjasópransins Ísaks Ríkharðssonar hljóma í Pie Jesu kaflanum alþekkta.

Tvær af frægustu sálumessum tónlistarsögunnar verða fluttar á tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á allra heilagra messu, sunnudaginn 6. nóvember kl. 17.00. Á þessum degi í fyrra söng Mótettukórinn sálumessur eftir Gabriel Fauré og Maurice Duruflé við orgelundirleik Mattiasar Wagers og uppskar mikið lof. Nú verður hin undurfagra sálumessa Faurés flutt á ný, í sjaldheyrðum hljómsveitarbúningi, og aftur mun tær rödd drengjasópransins Ísaks Ríkharðssonar hljóma í Pie Jesu kaflanum alþekkta.

Seinna verk tónleikanna er hin víðfræga sálumessa Wolfgangs Amadeusar Mozarts. Í kringum hana hefur spunnist leyndardómsfullur vefur þjóðsagna í ljósi þess að tónskáldið unga lést frá verkinu ókláruðu eftir að hafa fengið dularfulla beiðni um að semja það. Meginástæðan fyrir því að sálumessan nýtur stöðugra vinsælda er þó auðvitað sú að hún hefur að geyma óviðjafnanlega tilkomumikla tónlist. Sálumessan verður flutt til minningar um snillinginn Mozart, en 250 ár verða liðin frá fæðingu hans 27. janúar nk.

Flytjendur á tónleikunum auk Mótettukórs og Kammersveitar Hallgrímskirkju og Ísaks Ríkharðssonar eru einsöngvararnir Pascale Schulze-Schmidt sópran, Alina Dubik alt, Gunnar Guðbjörnsson tenór og Andreas Schmidt bassi. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Miðasala er hafin í Hallgrímskirkju og kostar miðinn 3000 kr. Símanúmerið þar er 510-1000. Gríptu þetta fágæta tækifæri til að heyra tvö af fegurstu tónverkum sögunnar í flutningi framúrskarandi tónlistarmanna í Hallgrímskirkju!

Sverrir Jónsson, 11/10 2005 kl. 14.46

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS