Hallgrímskirkja

 

Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju

Samkynhneigðir og kirkjan. Hver er ágreiningurinn?

Á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju á sunnudag 26. febrúar kl. 10.00, mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytja erindi sem hún nefnir: Samkynhneigðir og kirkjan. Hver er ágreiningurinn? Í erindi sínu mun sr. Irma Sjöfn kappkosta að gera hlutlæga grein fyrir ólíkum sjónarmiðum hvað varðar aðkomu kirkjunnar við stofnun sambúðar samkynhneigðra. Ekki er um umræðufund að ræða heldur er hann hugsaður sem upplýsing um ólík viðhorf í viðkvæmu og mikilsverðu máli til að auðvelda fólki að taka afstöðu með upplýstum hætti.

Kl. 11.00 hefst síðan messa þar sem séra Halldór Reynisson verkefnisstjóri á biskupsstofu mun prédika og þjóna fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni. Í messunni syngur Ester Jökulsdóttir messosópran aríur úr H-moll messu Bachs. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarf hefst á sama tíma í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna.

Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá séra Ásu Bjarkar Ólafsdóttur. Organisti er Douglas A. Brotchie. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn.

Kl. 17.00 hefjast síðan tónleikarnir Trompeteria

Birna Hjaltadóttir, 23/2 2006 kl. 12.23

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS