Hallgrímskirkja

 

Trompeteria á Vetrarhátíð 2006

Sunnudag 26. febrúar kl. 17 halda Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju sem jafnframt er framlag kirkjunnar til Vetrarhátíðar í Reykjavíkurborg 2006. Flytja þeir efnisskrá sem þeir léku í Keisarasalnum í Fílharmóníunni í Sankti Pétursborg í október sl. fyrir fullu húsi áheyrenda við frábærar undirtektir. M.a. verður flutt nýtt verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson, Da Pacem Domine, ásamt sígildum perlum, Tokkötu í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti, Konsert í C-dúr eftir Antonio Vivaldi og þáttum úr Orgelsinfóníu nr. 5 op. 42 eftir Charles Marie Widor, glæsiverki eftir franska tónskáldið Pierre Max Dubois, Suite breve í C-dúr, og verki eftir Malcolm Holloway, Pastorale.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Trompeteria á Vetrarhátíð 2006< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Sunnudag 26. febrúar kl. 17 halda Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju sem jafnframt er framlag kirkjunnar til Vetrarhátíðar í Reykjavíkurborg 2006. Flytja þeir efnisskrá sem þeir léku í Keisarasalnum í Fílharmóníunni í Sankti Pétursborg í október sl. fyrir fullu húsi áheyrenda við frábærar undirtektir. M.a. verður flutt nýtt verk eftir Jón Hlöðver Áskelsson, Da Pacem Domine, ásamt sígildum perlum, Tokkötu í D-dúr eftir Alessandro Scarlatti, Konsert í C-dúr eftir Antonio Vivaldi og þáttum úr Orgelsinfóníu nr. 5 op. 42 eftir Charles Marie Widor, glæsiverki eftir franska tónskáldið Pierre Max Dubois, Suite breve í C-dúr, og verki eftir Malcolm Holloway, Pastorale.

Samleikur hinna konunglegu trompeta og drottningar hljóðfæranna, pípuorgelsins, á sér langa sögu. Á endurreisnartímanum eða jafnvel fyrr léku trompetleikarar við kirkjulegar athafnir, lúðraköll undir inngöngu presta, undirspil við sálmasöng og millispil með orgelinu. Samhljómur þessara hljóðfæra kallar fram hughrif hátíðleika, sem á árlegum tónleikum í Hallgrímskirkju á gamlársdag hafa tengst andblæ áramóta en setja nú svip á fjölþætta Vetrarhátíð í Reykjavík.

Flest tónskáld kvöldsins það sameiginlegt að hluta æfi sinnar verið í þjónustu fursta, bæði kirkjulegra og veraldlegra. „Þjónustusamningar“ tónskálda sem áður tíðkuðust eru nú aflagðir og í staðin þjóna tónskáld samtímans m.a. sem kennarar, líkt og þau hafa gert þau samtímatónskáld sem eiga verk á þessum tónleikum, Jón Hlöver Áskelsson, Malcolm Holloway og Pierre Max Dubois.

Sverrir Jónsson, 23/2 2006 kl. 11.42

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS