Hallgrímskirkja

 

Séra Birgir Ásgeirsson settur í embætti prests í Hallgrímskirkju

Í messu í Hallgrímskirkju kl. 11.00 næstkomandi sunnudag mun séra Sigurður Pálsson setja séra Birgi Ásgeirsson í embætti prests í Hallgrímsprestakalli. Séra Birgir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði og Magneu Sverrisdóttur djákna. Mótettukór Hallgrímskirkju flytur Magnificat eftir Rachmaninoff undir stjórn Harðar Áskelssonar. Fermdur verður Ólafur Daði Helgason, Suðurgötu 20, Sandgerði. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna.

Tónleikar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju

Barokktónleikar á föstu verða fluttir kl. 17.00 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Flytjendur eru Hymnodia, Kammerkór Akureyrarkirkju og hópur barokkhljóðfæraleikara frá Svíþjóð. Einsöngvari er Anna Zander mezzosópran. Stjórnandi Eyþór Ingi Jónsson.

Membra Jesu nostri.

Barokktónleikar á föstu í Hallgrímskirkju Sunnudaginn 2. apríl kl. 17

Hymnodia og barokksveit flytur verk eftir Dietrich Buxtehude (1637-1707)

Hymnodia- kammerkór Akureyrarkirkju heldur barokktónleika í Hallgrímskirkju kl. 17. sunnudaginn 2. apríl á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Þar flytur kórinn sömu efnisskrá og í Akureyrarkirkju daginn áður, verk eftir Dietrich Buxtehude. Með kórnum koma fram sænskir barokkhljóðfæraleikarar í fremstu röð og ein skærasta stjarna barokksins í Svíþjóð, Anna Zander sópransöngkona sem syngur bæði einsöngskantötu og svo einsöngs- og kórhlutverk í aðalverki tónleikanna, Membra Jesu Nostri , einu af höfuðverkum barokktímans og mesta verki tónskáldsins Dietrichs Buxtehude.

Verkið samanstendur af sjö kantötum um líkama Krists á krossinum.

Stjórnandi kórsins er Eyþór Ingi Jónsson.

Anna Zander hefur þegar vakið mikla athygli víða um Evrópu fyrir söng sinn. Hún hefur sérhæft sig í flutningi tónlistar frá barokktímanum. M.a. söng hún althlutverkið í H-moll messu J.S. Bach í tónleikaferð hins virta Amsterdam baroque orchestra um Evrópu s.l. sumar. Stjórnandi var Ton Koopman. Lars Sjöstedt hefur einnig sérhæft sig í flutningi tónlistar frá þessu tímabili. Hann starfar sem organisti í Norrfjärden í Svíþjóð ásamt því að kenna semballeik við Tónlistarháskólann í Piteå. Hann hefur unnið til verðlauna í orgel keppnum.

Eyþór Ingi Jónsson er annar organista við Akureyrarkirku. Hann nam kirkjutónlist og síðar orgel einleik við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð. Þar sérhæfði hann sig í flutningi 17. aldar tónlistar. Ásamt því að starfa sem organisti og kórstjóri heldur Eyþór reglulega tónleika og fyrirlestra um barokktónlist, bæði hérlendis sem erlendis. Hymnodia* er kammerkór Eyþórs Inga Jónssonar, annars tveggja organista og söngstjóra við Akureyrarkirkju. Í kórinn hefur Eyþór valið einvalalið söngfólks á Akureyri til þess að flytja metnaðarfulla kórtónlist, bæði kirkjuleg verk og veraldleg. Hymnodia hefur sungið við helgihald í Akureyrarkirkju, sungið aftansögnva (vesper) og við miðnæturmessu á jólum. Þá hefur Hymnodia komið fram á Hólahátíð, sungið á tónleikum í kirkjunni, í Ketilhúsinu og víðar. Á árinu 2004 minntist kórinn 300 ára ártíðar franska barroktónskáldsins Marc-Antoine Charpentier með því að syngja nokkur verka hans. Í lok desember var flutt verkið Messe de minuit eftir Charpentier ásamt hljóðfæraleikurum og einsöngvurum. Kammerkórinn Hymnodia söng á Myrkum músíkdögum í febrúar og fékk frábæra dóma.

Ríkharður Örn Pálsson, tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins, sagði m.a . að kórinn væri kominn í röð fremstu kóra landsins og: “Flest heyrðist mér í sem næst úrvalsflokki. Í ofanálag var sönggleðin næsta smitandi, og skiptir það vitanlega ekki minnstu máli.”

*Hymnodia þýðir dýrðarsöngur. Þetta er latnesk útgáfa gríska orðsins hymnos. Hymnodia er í raun sálmasöngur bundinn í ljóðform, lofsöngur við helgihald kristinna manna. Upphaflega var þetta þó söngur safnaðarins sjálfs við helgihaldið. Á síðari árum hefur íslenska þjóðkirkjan hvatt mjög til þess að söfnuðurinn tæki þátt í sálmasöng við guðsþjónustur og aðrar helgiathafnir. Því má segja að við séum komin aftur til upphafsins í kirkjunni og söngur kirkjugesta sé hinn eini og sanni hymni.

Nánar um söngkonuna Anna Zander: annazander.com

Miðasala er í Hallgrímskirkju daglega kl. 9-17, sími 510 1000. Miðaverð er 2000 kr. Félagar í Listvinafélagi Hallgrímskirkju fá 50%afslátt, eldri borgurum og nemendum býðst miðinn á kr. 1500 .

Nánari upplýsingar veitir Eyþór Ingi Jónsson s. 8663393 og Inga Rós Ingólfsdóttir, s. 696 2849

Birna Hjaltadóttir, 30/3 2006 kl. 11.22

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS