Fræðslumorgunn á Æskulýðsdegi
Barnaréttur-foreldraréttur.
Á fræðslumorgnum í Hallgrímskirkju hafa í vetur verið fluttir nokkrir fyrirlestrar um börn og uppeldi sem er framlag kirkjunnar til átaksins Verndum bernskuna. Á fræðslumorgni næsta sunnudag, 5. mars kl. 10.00 verður enn einn sem tengist þessu efni. Þar mun umboðsmaður barna, Ingibjörg Rafnar, flytja fyrirlestur um efnið Barnaréttur-foreldraréttur. Í erindi sínu mun Ingibjörg ræða rétt barna gagnvart foreldrum sínum og forráðamönnum og rétt foreldra gagnvart börnum sínum og stjórnvöldum. Skýrt er kveðið á um uppeldisrétt og ábyrgð foreldra í alþjóðasamþykktum og verður gerð grein fyrir gildi þeirra í íslensku réttarkerfi. Á undanförnum árum hafa réttindi barna verið mjög í brennidepli og réttindi þeirra við ýmsar aðstæður bætt verulega. Uppeldisréttur og umönnunarskylda foreldra hefur verið minna í umræðunni og mun Ingibjörg einnig taka þetta til umræðu. Aðgangur er öllum opinn án endurgjalds.
Að fyrirlestrinum loknum hefst fjölskylduguðsþjónusta í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna og sr. Sigurðar Pálssonar. Barna og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Um kvöldið kl 20 er síðan samvera fyrir unglinga og foreldra þeirra í umsjá Magneu Sverrisdóttur, og munu unglingar sjá um dagskráratriði.
Birna Hjaltadóttir, 2/3 2006 kl. 12.46