Schütz-tónleikar í Hallgrímskirkju
Sunnudaginn 26. mars klukkan 16.00, heldur kammerkórinn Schola cantorum tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem eingöngu verða flutt verk eftir Heinrich Schütz, merkasta tónskáld Þýskalands á tímum snemmbarokksins. Þetta eru fyrstu tónleikar kórsins eftir að hann var gerður að atvinnukór og útnefndur Tónlistarhópur ársins 2006 hjá Reykjavíkurborg.
Sunnudaginn 26. mars klukkan 16.00, heldur kammerkórinn Schola cantorum tónleika á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem eingöngu verða flutt verk eftir Heinrich Schütz, merkasta tónskáld Þýskalands á tímum snemmbarokksins. Þetta eru fyrstu tónleikar kórsins eftir að hann var gerður að atvinnukór og útnefndur Tónlistarhópur ársins 2006 hjá Reykjavíkurborg. Kórinn er nú skipaður 14 söngvurum, sem munu á tónleikunum flytja 6 mótettur og 9 einsöngsverk. Allir kórfélagar koma fram sem einsöngvarar. Með kórnum koma fram Sigurður Halldórsson sellóleikari og Hörður Áskelsson orgelleikari, sem jafnframt er stjórnandi tónleikanna.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af mótettum og einsöngsverkum úr tveimur af merkustu tónverkasöfnum Heinrich Schütz, Trúarleg kórtónlist frá 1648 og Litlir trúarlegir konsertar frá 1636/1639, auk Lofsöngs Maríu frá 1657. Mótetturnar eru allar sex radda og verða fluttar án undirleiks, konsertarnir eru ýmist fluttir af einum, tveimur eða þremur söngvurum með fylgirödd sellós og orgels. Lofsöngur Maríu, Das deutsche Magnificat er fjögurra radda án undirleiks.
Sverrir Jónsson, 20/3 2006 kl. 14.19