Sunnudaginn 9. apríl, sem er Pálmasunnudagur, er messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 6/4 2006 kl. 13.29