Klassísk messa
Lux Aeterna, sem er áhugahópur um klassíska messu og iðkun gregorssöngs, stendur fyrir messu með gregorslagi 2. sunnudag hvers mánaðar kl. 20:00 í Hallgrímskirkju. Hópurinn kallar til helgiþjónustu ýmsa presta. Kynning og æfingar á messunum verða hálfri klukkustund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19:30 í Hallgrímskirkju.
Næsta messa verður pálmasunnudag 9. apríl kl. 20:00, prestur er sr. Geir Waage. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Klassísk messa og gregorssöngur er dýrmætur arfur kirkjunnar og kjarnmikið andlegt fóður. Það er von þeirra sem að þessari messuröð standa að með henni skapist vettvangur fyrir þau sem gleði hafa af því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti, hins elsta söngs kirkjunnar, sem tjáningarform trúarinnar.
Birna Hjaltadóttir, 5/4 2006 kl. 12.25