Hallgrímskirkja

 

Messur í Hallgrímskirkju 13. - 23. apríl 2006

13. apríl. Skírdagur. Messa kl. 20.00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Getsemanestund. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn.

14. apríl. Föstudagurinn langi. Messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors.

kl. 13.30 - 19.00 lestur Passíusálma. Leikarar lesa.

16. apríl. Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Guðsþjónusta kl. 11.00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Fimm einsöngvarar, kammersveit og Mótettukór Hallgrímskirkju flytja kantötuna Heute triumphiert Gottes Sohn eftir Dietrich Buxtehute undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Kl. 14.00 Ensk Hátíðarmessa. Séra Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari ásamt Séra Daniel N. Karanja. Herra George Packard biskup lúthersku kirkjunnar í Bandaríkjunum prédikar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn.

17. apríl. Annar Páskadagur. Ferming kl. 11.00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og Magneu Sverrisdóttur djákna. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn.

20. apríl. Sumardagurinn fyrsti. Skátamessa. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Bandalag íslenskra skáta sér um prédikun og söng.

23. apríl. Sunnudagur eftir Páska. Ferming kl. 11.00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og Magneu Sverrisdóttur djákna. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn.

Lestur Passíusálmanna í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa

Sú hefð hefur skapast að einn eða fleiri lesarar flytji alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa og verður svo einnig að þessu sinni. Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur fengið Gunnar Eyjólfsson leikara til þess að hafa umsjón með lestrinum og hefur hann fengið til liðs við sig valinkunna leikara.

Lesturinn hefst kl. 13 að undangengnum orgelleik Harðar Áskelssonar og Björns Steinars Sólbergssonar. Þrisvar verður gert hlé á lestrinum og flutt tónlist tengd föstunni. Fyrsta hléð verður eftir lestur 14. sálms, annað hlé eftir lestur 25. sálms og þriðja hléð eftir lestur 39. sálms. Hörður Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson leika þá m.a. orgelforleiki eftir J. S. Bach og Auður Guðjohnsen mezzosópran syngur aríu úr Mattheusarpassíu eftir Bach.

Leikararnir sem lesa eru:

Sigurður Skúlason

Edda Þórarinsdóttir

Jóhann Sigurðarson

Guðrún Þ. Stephensen

Erlingur Gíslason

Þóra Friðriksdóttir

Baldvin Halldórsson

Róbert Arnfinnsson

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Sigþór Albert Heimisson

Kristbjörg Kjeld

Eggert Kaaber

Herdís Þorvaldsdóttir

Jóna Guðrún Jónsdóttir

Helga E. Jónsdóttir

Steindór Hjörleifsson

Ragnheiður Steindórsdóttir

Gunnar Eyjólfsson

Birna Hjaltadóttir, 11/4 2006 kl. 12.47

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS