Hallgrímskirkja

 

“Við og Guð erum vinir”!

Börn, sem koma í Hallgrímskirkju á sunnudaginn munu áreiðanlega fá að heyra eitthvað við sitt hæfi. Eins og jafnan taka börnin þátt í fyrri hluta messunnar. Á sunnudaginn munu Barna- og unglingakórar Hallgrímskirkju og Austurbæjarskóla ásamt Drengjakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Fririks S. Kristinssonar. Síðan fara börnin með leiðtoga barnastarfsins, Magneu Sverrisdóttur og aðstoðarfóki hennar, inn í hliðarsal kirkjunnar, þar sem leikritið “Við erum vinir Guðs”, eftir Karin Vinje, verður flutt af leikhópnum Stopp. Má búast við miklu fjöri undir þeim flutningi. Foreldrar eru hvattir til að taka börnin með sér til kirkjunnar á sunnudaginn og leyfa þeim að njóta þar góðrar stundar. Eins er upplagt að börnin bjóði með sér félögum sínum.

Organisti við messuna er Hörður Áskelsson. Sr. Birgir Ásgeirsson, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni.

Eftir messu verður haldinn aðalsafnaðarfundur Hallgímssóknar.

Birna Hjaltadóttir, 27/4 2006 kl. 11.31

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS