Sunnudagur 14. maí: Messa kl. 11:00. Sr. Sigurður Pálsson predikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Félagar úr Mótettukórnum syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund barnanna verður í stað almenns barnastarfs. Kaffisopi eftir messu.
Klassísk messa kl. 20:00 á vegum Lux Aeterna, áhugahóps um klassíska messu og iðkun gregorssöngs. Prestur sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Kynning og æfing á messunni verður hálfri klukkustund fyrir messuna sjálfa eða kl. 19:30 í Hallgrímskirkju.
Birna Hjaltadóttir, 12/5 2006 kl. 11.39