Hallgrímskirkja

 

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 21. maí sem er 5. sunnudagur eftir páska, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Félagar úr Mótettukórnum syngja undir stjórn organistans, Harðar Áskelssonar. Í upphafi messu mun Hörður, sem er söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, kynna nýjan sálm og helgisöngva frá Suður-Afríku, Zimbabve og Palestínu, sem sungnir verða. Sögustund fyrir börnin er í umsjá Katrínar Guðlaugsdóttur. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 18/5 2006 kl. 14.21

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS