Á döfinni næstu daga
Laugardaginn 24. júní - Alþjóðlegt orgelsumar - hádegistónleikar. Thomas Trotter, sem er meðal þekktustu organista heims í dag, leikur. Auk þess leikur hann á sunnudag 25. júní kl. 20.00.
Thomas Trotter er borgarorganisti Birmingham á Englandi síðan 1983 og prófessor í orgelleik við Konunglega tónlistarháskólann í Lundúnum. Á efnisskránni á tónleikunum er m.a. einn af Vivaldi konsertumritunum Bachs, úr ballettónlist Stravinskys auk verka eftir W.A. Mozart, J. MacMillan, A. Wammes og I. Flagler. Miðaverð Kr. 1000.-. Á sunnudagstónleikana kostar miðinn Kr. 1500.-.
Birna Hjaltadóttir, 22/6 2006 kl. 11.56