Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju
Þýski organistinn Andreas Warler ríður á vaðið á fyrstu kvöldtónleikum sumarsins, sunnudaginn 18. júní kl. 20. Á efnisskrá hans eru bæði þekkt verk eins og Passacaglía Bachs og 3. orgelsónata Mendelssohns en á henni er líka að finna verk tónskálda sem ekki hafa verið leikin hér áður og þá sérstaklega nýleg verk þýskra tónskálda og eitt belgískt. Þá flytur Andreas Warler einnig nokkra dansa frá endurreisnartímabilinu og má líta á þá sem beina tengsl við orgelið í klausturkirkjunni í Steinfeld því þar er eitt stærsta og frægasta barrokorgel Rínarhéraðsins, smíðað árið 1727 af Balthasar König. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Erla Elín Hansdóttir, 18/6 2006 kl. 15.02