Hvítasunna 2006 Hátíð heilags anda Guðs.
Laugardagur 3. júní: Opnun sumarsýningar kl. 17:00 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir textíllistakona sýnir myndverk í forkirkjunni. Sýningin stendur til 26. ágúst 2006.
Hvítasunnudagur: Hátíðamessa kl. 11:00. Fagnaðarefni dagsins er koma heilags anda í kirkju Krists hér á jörð. Predikari dagsins er sr. Sigurður Pálsson, sem kveður söfnuð sinn eftir farsælan feril sem sóknarprestur. Sr. Birgir Ásgeirsson, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og Magnea Sverrisdóttir, djákni, þjóna fyrir altari. Mótettukórinn syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, organista. Um leið og sr. Sigurður kveður söfnuðinn, kemur sr. Jón Dalbú aftur til starfa, eftir nokkra mánaða hlé, og nú sem sóknarprestur.
Annar í hvítasunnu: Messa kl. 11:00. Sr. Jón Dalbú predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Félagar út Mótettukór Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar, organista. Vortónleikar Mótettukórsins kl. 17:00. Þar verða sungin og leikin verk eftir Rachmaninoff og er það frumflutningur þeirra verka hér á Íslandi. Stjórnandi Hörður Áskelsson.
Birna Hjaltadóttir, 1/6 2006 kl. 12.05