Hallgrímskirkja

 

Messa sunnudagsins

Sunnudaginn 25. júni, sem er annar sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Sr. Helgi Hróbjartsson prestur Íslendinga í Noregi prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undri stjórn Björns Steinar Sólbergssonar, organista.

Fimm drengir verða fermdir, en þeir eru búsettir í Noregi og hafa fengið sína fræðslu þar, en fermast á Gamla Fróni til að geta verið nær fjölskyldunni, en þeir heita: Arnar Hugi Birkisson, Ingiberg Viggósson, Ólafur Einar Hafliðason, Þorsteinn Darri Þorrason og Þórir Freyr Finnbogason.

Birna Hjaltadóttir, 23/6 2006 kl. 10.38

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS