Næsta helgi Alþjóðlegs orgelsumars
Svíinn Per Ahlman á laugardag 1. júlí kl. 12.00 og á sunnudag 2. júlí kl. 20.00.
Organisti helgarinnar í Hallgrímskirkju er Per Ahlman, organisti og tónlistarstjóri Kirkju heilagrar þrenningar í Gävle í Svíþjóð. Hann stundaði nám við tónlistarháskólann í Stokkhólmi og frá 1994 hefur hann starfað í Gävle. Þar stendur hann fyrir vikulegum hádegistónleikum og stjórnar alþjóðlegu orgeldögunum þar.
Á hádegistónleikunum, laugardaginn 1. júlí kl. 12.00, leikur Per Ahlman aðallega tónlist 18. aldar, tvær fúgur eftir sænska tónskáldið H.P. Johnsen, Adagio eftir W.A. Mozart og Prelúdíu og fúgu í C-dúr eftir J.S. Bach. Inn á milli leikur hann Koral eftir Svíann Fredrik Sixten, dómorganista í Härnösand.
Á kvöldtónleikunum, sunnudaginn 2. júlí kl. 20.00, býður Per Ahlman fyrir hlé upp á verk Bachs og Mozarts og Þrjú stutt verk eftir breska organistann og tónskáldið Percy Whitlock. Eftir hléið gefur Per góða innsýn í þróun sænskrar orgeltónlistar frá H.P. Johnsen til nútímans. Eftir Andes Bond, organista í Dölunum. leikur hann Meditation, úr tónlist fyrir Himnaspilið, þjóðlega leikritið, sviðsett á hverju sumri í Dölunum og eftir Otto Olsson leikur hann Sestetto. Otto Olsson var einn virtasti organisti Svía á fyrri hluta 20. aldar, organisti Gustav Vasa kirkjunnar í Stokkhólmi og prófessor við Tónlistarháskólann.
Tónleikunum lýkur með Triptyk, verki Fredrik Sixten, sem hann samdi sérstaklega fyrir 350 ára vígsluafmæli kirkju Per Ahlmans árið 2004 og hann frumflutti árið 2004. Verkið er í þremur köflum tileinkað heilagri þrenningu og Sixten nýtir þekkt stef til að tákna Guð föður, Krist og Heilagan Anda.
Birna Hjaltadóttir, 29/6 2006 kl. 13.17