Vortónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju
Á annan dag hvítasunnu, þ. 5. júní, klukkan 17.00 mun Mótettukór Hallgrímskirkju halda sína árlegu vortónleika í 24.sinn og flytja stórbrotna kórtónlist frá Austur-Evrópu. Kórinn er með þessari efnisskrá að fara inn á slóðir í efnisvali sem hann hefur ekki kannað áður. Sungið verður á rússnesku, kirkjuslavnesku, grísku og latínu.
Á efnisskránni er eingöngu kórtónlist án undirleiks, sem fengin er frá rétttrúnaðarkirkjum Austur-Evrópu eða er sprottin upp úr tónmáli þeirra. Þekktustu verkin eru 5 mótettur úr Páskavöku (Vesper) eftir Rachmaninoff, sem er safn fjölradda helgisöngva fyrir blandaðan kór og hefur notið vaxandi vinsælda hjá unnendum kórtónlistar undanfarin ár, en ekki heyrst mikið á Íslandi. Kórinn flytur valin verk eftir hinn serbneska og rómantíska Mokranjac, sem var afar afkastamikið tónskáld og hefur líklega ekki áður verið sunginn af íslenskum kór. Eftir pólska samtímatónskáldið Gorecki verða flutt tvö öndvegis verk, Totus tuus og Amen, bæði samin undir áhrifum frá kórstíl austurkirkjunnar. Þar að auki eru verk eftir Stevan Hristic og St. Nektario af Aegina.
Eitt helsta einkenni tónlistar austurkirkjunnar er að hún er öll sungin því engin hljóðfæri voru notuð. Annað sem einkennir tónlistina eru hinar miklu andstæður, bæði djúpir bassar og háir sópranar og tilfinningaauðgin er meiri en við í vesturkirkjunni eigum að venjast.
Á hvítasunnudag tekur Mótettukórinn nýja kórbúninga í notkun. Þeir eru hannaðir af Sigríði Ástu Árnadóttur hönnuði og kórfélaga.
Í tengslum við tónleikana stendur kórinn fyrir sýningu á um 70 íkonum frá fjórum löndum í Austur-Evrópu, en sýning þessi hefur vakið mikla athygli víða um Evrópu að undanförnu, en sýningin kemur hingað frá London.
Mótettukórinn mun síðan flytja hluta af sömu dagskrá á tónleikum auk íslenskra verka í London og Rochester dómkirkjunni um miðjan júní.
Miðasala á tónleikana er í Hallgrímskirkju. Listvinum skal bent á að miði þeirra kostar einungis 1.000 kr, en fullt verð er 2.000 kr.
Birna Hjaltadóttir, 2/6 2006 kl. 13.07