Alþjóðlegt orgelsumar
Alþjóðlegt orgelsumar heldur áfram. Á fimmtudaginn 6. júlí eru hádegistónleikar þar sem Tómas Guðni Eggertsson, organisti í Stykkishólmi leikur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 og standa í um það bil 40 mínútur. Á efnisskránni er Praeludium et Fuga in A BWV 536 eftir J.S.Bach, Prelúdía og fúga í d-moll op. 37 eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy og Tokkata í G-dúr, nr. 3 eftir Theodore Dubois. Miðaverð er kr. 1000.-.
Birna Hjaltadóttir, 4/7 2006 kl. 13.51