Alþjóðlegt orgelsumar
Alþjóðlegt orgelsumar heldur áfram í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. Á hádegistónleikunum, fimmtudaginn 20. júlí, leikur Douglas A. Brotchie, organisti Háteigskirkju.
Á efnisskránni er Cornelius March op. 108 eftir Felix Mendelssohn-Bartholdy, Praeludium et Fuga in G BVW 541 eftir Johann Sebastian Bach, Mozart Changes eftir Zsolt Gárdonyi og Adagio og Toccata eftir Charles-Marie Widor. Miðaverð á tónleikana er kr. 1000.-
Birna Hjaltadóttir, 19/7 2006 kl. 11.13