Hallgrímskirkja

 

Alþjóðlegt orgelsumar

Hádegistónleikarnir á fimmtudögum eru í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. Á morgun, fimmtudaginn 27. júlí kl. 12.00 leikur Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Sigrún Magna Þórsteinsdóttir er í orgelnámi við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Á efnisskránni hjá henni eru verk eftir Georg Böhm: Prelúdía og fúga í C-dúr, Johann Sebastian Bach: Allein Gott in der Höh´sei Ehre BWV 662, Paul Hindemith: úr Sonate 1: 2. og 4. kafli og J.S. Bach: Concerto G-Dur BWV 592. Tónleikarnir byrja kl. 12.00 og miðaverð er kr. 1000.-

Birna Hjaltadóttir, 26/7 2006 kl. 10.14

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS