Fjölbreytt dagskrá í Hallgrímskirkju um helgina
Helgina 8. - 9. júlí verða orgeltónleikar á vegum Alþjóðlega orgelsumarsins, en þessa helgi er Guðný Einarsdóttir með tónleika, fyrst á laugardag kl. 12.00, en síðan á sunnudagskvöldið kl. 20.00.
Guðný er ný-útskrifuð frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn og er á leið til Parísar til frekara náms. Guðný leikur m.a. verk eftir Bach, Alain og Widor. Miðaverð á tónleikana á laugardag er kr. 1000.- og á sunnudagskvöld kr. 1500.-.
Birna Hjaltadóttir, 5/7 2006 kl. 10.06