Hallgrímskirkja

 

Helgin 22. og 23. júlí 2006

Dagskrá Alþjóðlega orgelsumarsins heldur áfram laugardaginn 22. júlí með hádegistónleikum kl. 12:00. Sophie-Véronique Chauchefer-Choplin, organisti við St. Sulpice kirkjuna í París, leikur á orgelið. Hún leikur einnig á kvöldtónleikum sunnudagskvöld kl. 20:00.

Sunnudaginn 23. júlí er messa kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Organisti verður Lára Bryndís Eggertsdóttir og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir sönginn. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.

Birna Hjaltadóttir, 20/7 2006 kl. 11.19

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS