Hallgrímskirkja

 

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 9. júlí, sem er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Organisti er Hörður Áskelsson, kantor Hallgrímskirkju. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.

Eftir messu er einnig kynning á íkonasýningunni, sem verið hefur í kirkjunni nokkrar vikur, en þetta er síðasta sýningarhelgin. Lazar Predrag Markovic, sem farið hefur með íkonasýningunni um Evrópu sl. 3 ár, mun gefa innsýn í þann hugarheim sem hægt er að finna í verkunum.

Birna Hjaltadóttir, 5/7 2006 kl. 10.15

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS