Sumar í Hallgrímskirkju
Helgin 15. og 16. júlí 2006
Dagskrá Alþjóðlega orgelsumarsins heldur áfram laugardaginn 15. júlí, kl. 12 með hádegistónleikum Ji-Youn Han frá Suður -Kóreu, en hún var sigurvegari í orgelkeppninni í Nurnberg 2004. Hún leikur einnig á kvöldtónleikum sunnudagskvöldið kl. 20.00< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Sunnudaginn 16. júlí er messa kl. 11.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Lenka Mátéová verður organisti og hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir safnaðarsönginn. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.
Birna Hjaltadóttir, 13/7 2006 kl. 9.45