Sunnudagur í Hallgrímskirkju
Sunnudagurinn 30. júlí er sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Kl. 11.00 er messa þar sem séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Hópur úr mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Boðið er upp á kaffisopa eftir messu að venju.
Ensk messa er kl. 14.00 í umsjá séra Yrsu Þórðardóttur. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn. Kaffisopi eftir messu.
Alþjóðlegt orgelsumar: kl. 20.00 eru orgeltónleikar, þar sem Bine Katrine Bryndorf, organisti í Kaupmannahöfn leikur.
Á efnisskránni á tónleikunum á sunnudagskvöld er Praeludium in D BuxWV 139 eftir Dietrich Buxtehude, Sanctus: Élevation, tierce en taille eftir Francois Couperin, Úr/from: Les Corps glorieux, II Les eaux de la grace, V Force et agilité des corps glorieux eftir Olivier Messiaen, Andante in F-Dur KV 616 eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Contrasti per organo (1972) op. 113 eftir Vagn Holmboe, Sonata Vk in C BWV 529 eftir Johann Sebastian Bach og Praeludium in d BuxWV 140 eftir Dietrich Buxtehude. Miðaverð á tónleikana er kr. 1500.-
Birna Hjaltadóttir, 28/7 2006 kl. 14.37