Alþjóðlegt orgelsumar
Alþjóðlegt orgelsumar heldur áfram í samvinnu við Félag íslenskra organleikara. Á hádegistónleikunum fimmtudaginn 3. ágúst leika hjónin Steingrímur Þórhallsson organisti í Neskirkju og Pamela De Sensi þverflautuleikari.
Á efnisskránni eru verk eftir César Franck: Choral no. 3 í a-moll og Jean Langlais: Sept chorals fyrir þverflautu og orgel. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00. Miðaverð er kr. 1000.-.
Birna Hjaltadóttir, 2/8 2006 kl. 11.05