Messa í Hallgrímskirkju
Á sunnudaginn 6. ágúst, sem er áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur og messuþjónum. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Einnig mun þýskur ferðahópur á vegum Liebenzeller Mission taka þátt í messunni. Á eftir messu er boðið upp á kaffisopa.
Birna Hjaltadóttir, 3/8 2006 kl. 14.31