Hallgrímskirkja

 

Messur í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 13. ágúst, sem er níundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukórnum leiða messusönginn. Að lokinni messu er boðið upp á kaffi í suðursalnum.

Regnbogamessa kl. 16.00 - Sr. Pat Bumgardner frá söfnuði Metropolitan Community Church í New York predikar. Fyrir altari þjónar prestur Hallgrímskirkju, sr. Birgir Ásgeirsson ásamt prestunum sr. Ásu Björk Ólafsdóttur, sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur, sr. Óskari Hafsteini Óskarssyni, sr. Sigfinni Þorleifssyni og sr. Sjöfn Þór. Blandaður kór syngur undir stjórn Árna Heimis Ingólfssonar. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Eftir messu er boðið upp á kaffiveitingar í suðursal Hallgrímskirkju.

Birna Hjaltadóttir, 10/8 2006 kl. 12.16

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS