Þýsk orgeltónlist á tónleikum helgarinnar í Hallgrímskirkju
Organisti St. Michaelis kirkjunnar, sem er ein af höfuðkirkjum Hamborgar, Christoph Schoener, er gestur Alþjóðlegs orgelsumars 5. og 6. ágúst næstkomandi. Hann hóf störf sín í Michaelis kirkjunni árið 1998, en áður hafði hann verið organisti í Leverkusen og kennt m.a. við Robert-Schumann tónlistarháskólann í Düsseldorf. Á tónleikum helgarinnar leikur hann eingöngu tónlist eftir þýsk tónskáld.
Á hádegistónleikunum 5. ágúst kl. 12.00, leikur Christoph Schoener verk frá 18. og 19. öld. Fyrst leikur hann Prelúdíu og fúgu í a-moll eftir J.S. Bach, síðan tvo kafla, Nicht zu schnell og Lebhaft (Ekki of hratt og Líflega) eftir Robert Schumann og tónleikunum lýkur á Der heilige Franziskus von Paula auf den Wogen schreitend (Heilagur Frans frá Paula gengur á vatninu) eftir Franz Liszt, sem hann skrifaði upphaflega fyrir karlakór, orgel og slagverk árið 1860, þegar hann dvaldi í Róm. Hér er það flutt í umritun W. Sebastian Meyer.
Kvöldtónleikarnir, sunnudaginn 6. ágúst kl. 20.00, hefjast á Prelúdíu og Fúgu í e-moll eftir Felix Mendelssohn, þá kemur Air célebre eftir Sigfrid Karg-Elert og Prelúdía og fúga í a-moll eftir J.S. Ba h og fyrri hluta efnisskrárinnar lýkur með Fantasíu í f-moll eftir W.A. Mozart. Síðari hlutinn hefst með tveimur köflum, Nicht zu schnell og Lebhaft (Ekki of hratt og Líflega) eftir Robert Schumann og Der heilige Franziskus vo Paula auf den Wogen schreitend (Heilagur Frans frá Paula gengur á vatninu) eftir Franz Liszt. Síðasta verkið á efnisskránni er Prelúdía og Fúga um BACH eftir Liszt. (Tekið saman af Erlu Elínu Hansdóttur, framkvæmdastjóra Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju).
Birna Hjaltadóttir, 3/8 2006 kl. 14.22